Jákvæð afkoma og lækkandi skuldir hjá Grundarfjarðarbæ

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti í gær samhljóða við fyrri umræðu fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028–2030. Gert er ráð fyrir 158,2 milljóna króna rekstrarafgangi hjá samstæðu A- og B-hluta árið 2027. Jafnframt er áætlað að skuldir lækki á árinu og að skuldahlutfall lækki úr 109,4% samkvæmt útkomuspá 2026 í 101,4% í árslok 2027.