
Halda á morgun umfangsmikla slökkviæfingu – kveikja í gömlu íbúðarhúsi
Slökkvilið Borgarbyggðar heldur á morgun, laugardag, umfangsmikla æfingu á Ferjubakka í Borgarhreppi. Æfingin hefst kl. 9:30 og stendur fram eftir degi.
Að sögn Heiðars Arnar Jónssonar slökkviliðsstjóra verður gamal og ónýtt íbúðarhús brennt og notað við æfinguna. „Þar verður reykköfun og slökkvistarf við raunverulegar aðstæður æfðar. Kveikt verður í húsinu og að lokinni æfingu verður því leyft að brenna undir stjórn og eftirliti slökkviliðsins. Slökkvilið Borgarbyggðar verður á staðnum þar til eldurinn hefur slokknað og aðstæður eru tryggar,“ segir Heiðar.
„Við vekjum athygli á því að fólk gæti orðið vart við eld og reyk frá staðnum. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem æfingin kann að valda og þökkum fyrir skilninginn. Tækifæri til að æfa við raunverulegar aðstæður er ómetanlegt til að viðhalda þekkingu og hæfni slökkviliðsins.“