
Bjarni kynnir nýjustu bók sína
Í haust kom út hjá Bókaútgáfunni Sæmundi á Selfossi bókin Búverk í horfnum heimi eftir Bjarna Guðmundsson á Hvanneyri. Bókin er eins konar framhald bókar Bjarna, Búverk og breyttir tímar, sem kom út árið 2024. Bækurnar geyma mislangar búverkasmásögur. Sögurnar lýsa tilteknum verkhætti, verkfæri eða viðhorfum sem mynduðu hver sinn þátt í þróun landbúnaðarins og sveitanna. Þær eru endurómur af miklu breytingaskeiði – stuttu eða löngu eftir atvikum. Sum höfðu mikil áhrif. Önnur minni.
Í þessari bók, Búverk í horfnum heimi¸ er m.a. fjallað um sleða og sleðanotkun, móskurð og móvinnslu svo og fyrstu Fordson-dráttarvélarnar en í ár eru rétt 100 ár síðan þær voru teknar í notkun hérlendis, fyrstu aflvélarnar til búverka sem almennar urðu til sveita. Kafli er um kornmyllur, m.a. vatnsknúnar myllur eins og tíðkuðust í Hálsasveit, en á Húsafelli er einmitt verið að endurbyggja vatnsknúna myllu sem þar stóð. Loks má nefna viðtal við Jón Guðjónsson ráðunaut og bónda á Laugabóli við Ísafjörð, frá Hermundarstöðum í Þverárhlíð, um störf hans að rekstri og þjónustu við farand-ræktunarvélar Búnaðarsambands Borgarfjarðar um miðja síðustu öld og fleira. Þá var mikil ræktunarbylgja að hefjast í sveitum.