Ragnar Þór Ingólfsson við nýjar íbúðir í Stykkishólmi. Ljósm. óhk

Húsnæðisbætur verði nýttar betur til stuðnings tekjulægri leigjendum

Endurskoða á fyrirkomulag húsnæðisbóta með það að markmiði að stuðningur hins opinbera nýtist betur þeim leigjendum sem hafa lægri tekjur og minni eignir. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp sem á að leggja fram tillögur að breytingum á núverandi kerfi. Áhersla verður lögð á að beina fjárhagslegum stuðningi þangað sem þörfin er mest og bæta þannig stöðu efnaminni heimila á leigumarkaði.