
Bent á veðuraðstæður þar sem frostregn myndar hálku
Í dag verður sunnan- og suðvestan átt 5-13 m/s og snjókoma á vestanverðu landinu, en slydda eða rigning á láglendi síðdegis og hiti 0 til 5 stig. Hægari á austanverðu landinu, þurrt og kalt, en dálítil snjókoma þar seinnipartinn og dregur úr frosti. Norðlæg átt, víða 8-15 m/s og dálítil snjókoma fyrir hádegi á morgun, en úrkomulítið sunnan- og austanlands. Gengur í vestan- og norðvestan 10-18 m/sek með snjókomu fyrir norðan síðdegis á morgun. Norðlægari, 18-25 með snjókomu annað kvöld, hvassast á Norðurlandi, en mun hægara og úrkomulítið suðaustantil. Kólnandi veður.
Í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar segir að það fari að snjóa í fremur hægri suðlægri átt með morgninum. Hægt hlýnandi veður og skiptir yfirleitt í slyddu og síðan rigningu. Vindur er það hægur að hann nær sums staðar ekki að ryðja kalda loftinu frá, en úrkoman heldur áfram og því gæti komið frostregn síðdegis. Líkur á flughálku um suðvestanvert landið, einkum í uppsveitum sunnan- og vestanlands, en einnig á stöku stað á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu.