
Eyjólfur Ármannsson. Ljósm. úr safni Skessuhorns/ mm
Kynnti aðgerðir til að efla byggðir landsins
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041 og aðgerðaáætlun til fimm ára. Í aðgerðaáætluninni eru kynntar 44 fjölbreyttar aðgerðir til að efla byggðir landsins og ganga þær þvert á alla málaflokka. Þar af eru kynntar 30 nýjar aðgerðir.