Ístex dregur að gera ullarskuld upp við bændur

Íslenskur textíliðnaður hf, Ístex hf., er ullarvinnslufyrirtæki sem vinnur nánast alla ull sem til fellur af íslensku sauðfé. Fyrirtækið komst fyrir nokkrum árum að stærstum hluta í eigu bænda og fjórir í stjórn þess koma úr röðum þeirra og einn frá Bændasamtökum Íslands. Ístex rekur ullarþvottarstöð á Blönduósi og spuna- og bandverksmiðju á grunni Álafossverksmiðjunnar í Mosfellsbæ. Byggingarréttur og fasteign á stórri lóð í Mosfellsbæ hefur verið haldgóð trygging fyrir skuldum fyrirtækisins sem farið hefur í gegnum öldudali í rekstri. Gunnar Þórarinsson, formaður stjórnar Ístex, segir í samtali við Skessuhorn að þrátt fyrir að dregist hafi að gera upp við bændur sé eiginfjárstaða fyrirtækisins góð.