Íþróttasvæðið á Jaðarsbökkum. Ljósm. mm

Akraneskaupstaður stefnir að jákvæðum rekstri og lækkun skulda

Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2027, ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030, var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í gær. Gert er ráð fyrir að rekstrarafkoma samstæðu Akraneskaupstaðar verði jákvæð um 414,3 milljónir króna á næsta ári en á árunum 2028–2030 er gert ráð fyrir að afkoman verði jákvæð um 377 milljónir króna á ári að meðaltali. Áætlunin gerir ráð fyrir að Akraneskaupstaður verði áfram innan fjárhagslegra viðmiða sveitarfélaga. Skuldir eiga að lækka á næstu árum og að skuldaviðmið sveitarfélagsins fer úr 66% í árslok 2027 í 57,5% í árslok 2030. Það er vel undir hámarksviðmiði um skuldir sveitarfélaga, sem er 150% af reglulegum tekjum. Í framangreindu skuldaviðmiði eru ekki teknar með lífeyrisskuldbindingar. Langtímaskuldir sveitarfélagsins á næsta ári verða 5,3 milljarðar og skammtímaskuldir 2,6 milljarðar. Skuldir per íbúa samkvæmt því eru um 918.000 krónur. Samanlögð rekstrarafkoma Akraneskaupstaðar í þrjú ár er áætluð jákvæð um 989 milljónir króna í árslok 2027 og rúmar 1.131 milljón króna í árslok 2030. Veltufé frá rekstri er áætlað 10,1% árið 2027 og gert er ráð fyrir að hlutfallið haldist stöðugt út árið 2030.