Vinna á morgun við aðveitustöðvar

Vegna viðhaldsvinnu Landsnets við aðveitustöð rafmagns á Vatnshömrum í Andakíl og á Vegamótalínu á Snæfellsnesi á morgun, fimmtudaginn 5. nóvember frá kl. 09:00 til 18:00, munu virkjanir og varaaflsvélar á svæðinu sjá viðskiptavinum á Snæfellsnesi og í Borgarfirði fyrir rafmagni.

„Ekki er búist við rafmagnsleysi af þessum sökum, en viðskiptavinir eru hvattir til að fara sparlega með rafmagn meðan á þessum aðgerðum stendur. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528-9000,“ segir í tilkynningu.