Sala á Neyðarkalli björgunarsveitanna er að hefjast

Dagana 4.–8. nóvember mun sala Neyðarkalls björgunarsveita Landsbjargar standa yfir. Almenningur getur vænst þess að sjálfboðaliðar sveitanna verði við verslanir og á öðrum fjölförnum stöðum næstu daga og bjóði Neyðarkall til sölu. Í ár fagnar Neyðarkall björgunarsveitanna 20 ára afmæli, en átakið hófst árið 2006. „Í tvo áratugi hefur almenningur sýnt björgunarsveitunum ómetanlegan stuðning með kaupum á Neyðarkalli og þannig lagt sitt af mörkum til öflugs björgunar- og slysavarnastarfs um allt land. Árlegt fjáröflunarátak Neyðarkallsins er ein af mikilvægum stoðum í starfi björgunarsveita og slysavarnadeilda. Allur ágóði af sölunni rennur til starfsins og nýtist meðal annars til kaupa á búnaði, þjálfunar sjálfboðaliða og eflingar viðbragðsgetu,“ segir í tilkynningu.