
Spjallað saman. Myndir: HÓO
Greina og merkja gamlar ljósmyndir
Dágóður hópur eldri borgara á Akranesi kemur saman á bókasafni bæjarins á miðvikudagsmorgnum klukkan 10-12. Þar eru skoðaðar, greindar og merktar gamlar ljósmyndir. Hópfélagar skiptast á um að koma með bakkelsi með kaffinu. Eins og sést á meðfylgjandi myndum er afar góð þátttaka í þessum hittingi.