Gistinóttum fjölgaði í september

Gistinóttum á hótelum á Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði um 7,2% í september miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt nýjum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Aukningin var með því mesta sem mældist á landinu, en jafnframt batnaði nýting hótelherbergja á svæðinu meira en í öðrum landshlutum. Herbergjanýting á Vesturlandi og Vestfjörðum jókst um 5,1% milli ára, sem bendir til góðrar eftirspurnar eftir hótelgistingu á svæðinu. Til samanburðar dróst nýting hótelherbergja saman um 0,6 prósentustig á landsvísu. Alls voru gistinætur á hótelum hér á landi tæplega 561 þúsund í september og fjölgaði þeim um 3% frá sama mánuði í fyrra.