„Horfðu á ljósmyndarann,“ var Arinbjörn þarna að segja við tíkina sína Þulu sem var að læra allt sem til þarf í fjár- og hrossarekstrarfræðum. Texti og myndir: MM

Arinbjörn á Brekkulæk fallinn frá

Arinbjörn Jóhannsson bóndi og frumkvöðull í ferðaþjónustu á Brekkulæk í Miðfirði lést 29. október síðastliðinn, 76 ára að aldri. Fyrir nær hálfri öld fór Arinbjörn, eða Abbi eins og hann var oft kallaður, að skipuleggja og fara ferðir suður yfir Arnarvatnsheiði, ýmist göngu- eða hestaferðir. Fór hann m.a. í hálfs mánaðar ferðir þar sem riðið var úr Miðfirði, um Arnarvatnsheiði, Borgarfjörð, þaðan vestur í Dali og loks er hringnum lokað í Miðfirði. Arinbjörn var frumkvöðull hér á landi í skipulagningu slíkra ferða. Hann nýtti náttúruna í sátt við hana, en með öðrum hætti en forfeður hans gerðu.

Fyrir þremur árum heimsótti blaðamaður Skessuhorns Arinbjörn á búgarð hans í vestanverðum Miðfirði. Abbi og kona hans Claudia Hofmann stóðu þá enn fyrir rekstri viðamikillar ferðaþjónustu. Arinbjörn myndaði sterk tengsl við Borgfirðinga og Dalamenn á ferðum sínum um landið en ekki síst átti hann þátt í að þúsundir ferðamanna komu hingað til lands og mynduðu tengsl við land og þjóð. Í ítarlegu viðtali í Skessuhorni nefndi hann nokkra þessara vina sinna og sagði einnig að Þverárhlíð í Borgarfirði væri fögurst íslenskra sveita. Arinbjörn var mikill stuðnings- og velvildarmaður Skessuhorns og er honum þökkuð samfylgdin.

Við minnumst Abba með því að birta hér í heild sinni viðtalið í Skessuhorni frá haustinu 2023. Allar tímasetningar miðast við það:

Arinbjörn Jóhannsson í essinu sínu. Myndin er tekin í gangnamannaskála á Arnarvatnsheiði fyrir um áratgug. Ljósm. Gísli Már Gíslason

Arinbjörn á Brekkulæk tekinn tali:

„Ég vissi að Arnarvatnsheiðin væri sérstök og gæti fallið í kramið“

Sögusvið okkar er að þessu sinni norður í Miðfirði og hálendið upp af honum. Venjulega tengjast viðmælendur í Skessuhorni Vesturlandi með beinum hætti í gegnum búsetu, en að þessu sinni er tengingin sú að viðmælandi okkar hefur í bráðum 45 ár haft atvinnu sína af að skipuleggja og sjá um ferðir suður yfir Arnarvatnsheiði, ýmist göngu- eða hestaferðir. Hefur skipulagt allt upp í hálfs mánaðar ferðir þar sem riðið er úr Miðfirði, um Arnarvatnsheiði, Borgarfjörð, þaðan vestur í Dali og loks er hringnum lokað í Miðfirði. Viðmælandi okkar var frumkvöðull hér á landi í skipulagningu slíkra ferða og hann er enn að. Hann nýtir náttúruna í sátt við hana, en nýtir hana með öðrum hætti en forfeður hans og okkar gerðu. Blaðamaður Skessuhorns heimsótti undir lok síðustu viku Arinbjörn Jóhannsson ferðaþjónustubónda á Brekkulæk í Miðfirði. Bærinn er í vestanverðum Miðfirði, um átta kílómetra frá þjóðveginum. Arinbjörn og kona hans Claudia Hofmann standa fyrir rekstri viðamikillar ferðaþjónustu. Nú þegar sumri er tekið að halla eru flestar skipulagðar ferðir sumarsins afstaðnar og byrjað að hægjast um í ferðaþjónustunni. Þá gefst tími til spjalls.

Reisulegt bæjarhús á Brekkulæk. Fjórum sinnum hefur verið byggt við gamla íbúðarhúsið. Þar eru nú 18 herbergi til útleigu og hægt að taka í gistingu og mat á fjórða tug gesta.

Sögufrægt hérað

Miðfjörður liggur milli Vatnsness og Heggstaðaness í Vestur-Húnavatnssýslu og við hann stendur meðal annars kauptúnið Hvammstangi þar sem afi Arinbjarnar byggði fyrstu húsin - og nokkrum kílómetrum norðar Illugastaðir sem í dag er þekktur fyrir selaskoðun en á fyrri tíð fyrir talsvert óhugnanlegri atburði. Þar voru nefnilega Natan Ketilsson og Pétur Jónsson myrtir með grimmilegum hætti árið 1828 af Agnesi Magnúsdóttur og Fiðriki Sigurðssyni. Tveimur árum síðar voru þau dæmd til að hálshöggvast og dauðadóminum, hinum síðasta á Íslandi, var framfylgt við svokallaða Þrístapa í Vatnsdalshólum. Upp af Miðfirði gengur samnefndur víður dalur með blómlegri byggð og ekki síður sögufrægum stöðum, en innst klofnar dalurinn í þrjá smærri; Miðfjarðardali, sem heita Vesturárdalur, Núpsdalur og Austurárdalur. Úr þessum dölum renna þrjár ár, sem dalirnir eru nefndir eftir, og sameinast loks í Miðfjarðará, sem hefur í gegnum tíðina verið afar gjöful laxveiðiá og átt sinn þátt í búsæld sveitarinnar. Austan Miðfjarðarár er lítill þéttbýliskjarni, Laugarbakki, þaðan sem heitt vatn hefur nú verið lagt á nærliggjandi bæi.

Áður var þjóðleið upp úr Miðfirði suður um Tvídægru, yfir Arnarvatnsheiði og til Borgarfjarðar. Nú er þessi leið um áttatíu kílómetrar sé ekið eftir veginum, en við Arnarvatn stóra eru vegfarendur hálfnaðir á leið sinni að Húsafelli. Áður fyrr gat þessi þjóðleið verið villugjörn og stundum torfær. Í gegnum ár og aldir tengjast Húnvetningar og Borgfirðingar sterkum böndum vegna sameiginlegra nytja á heiðinni. Til marks um það er fræg ljósmynd þar sem fjallkóngar sunnan- og norðanmanna heilsast á miðri heiðinni, raunar kyssast, slíkir voru fagnaðarfundirnir. Afrétturinn var nýttur af bændum beggja sýslna en afréttargirðing skilur á milli. Þá var silungsveiði í vötnunum mikil búbót, gengið til grasa og rjúpna og svo mætti áfram telja. Fólk dró fram lífið með að nýta það sem náttúran þá gaf og enn ef því er að skipta, þó með öðrum hætti sé. Arnarvatnsheiðin var og er náttúruparadís sem Arinbjörn Jóhannsson hefur nýtt sem sögusvið ferða með gesti sína.

Afdrifaríkt puttaferðalag

Sjálfur er Arinbjörn Jóhannsson fæddur 1950 og alinn upp á Brekkulæk þar sem faðir hans rak bú og þar áður afi hans frá 1907. „Afi minn var húsasmiður og byggði sem slíkur meðal annars fyrstu húsin á Hvammstanga. Hann byggir hér upp frá 1907 en auk búskapar hafði hann drjúgar tekjur af því að veiða lax í Miðfjarðaránni, reykja og selja. Áin hefur alltaf gefið vel og við bræður sem eigum Brekkulæk í dag, njótum enn hlunninda af laxveiðinni. Pabbi minn var hins vegar grunnskólakennari samhliða því að vera bóndi. Ég og systkini mín ölumst því upp við almenn sveitastörf hér á Brekkulæk. Svo fer ég í nám eins og gengur, fyrst að Reykjum og síðar í Menntaskólann á Akureyri. Ég fór seint í nám og var til dæmis búinn að taka bílpróf áður en ég lauk landsprófi. Eftir menntaskólann langaði mig að skoða heiminn og horfði gjarnan til þriðja heimsins. Árið 1973 fer ég svo í puttaferðalag um Danmörku, Svíþjóð og Pólland og lendi svo eiginlega fyrir tilviljun í Berlín í Þýskalandi, en fyrirfram vissi maður ekki hvert puttaferðalag myndi leiða mann. Það má segja að þá hafi orðið vendipunktur í mínu lífi. Mér líkaði afar vel þar, heillaðist af borginni og menningunni, og átti eftir að ílengjast í Þýskalandi.“

Claudia Hofmann og Arinbjörn Jóhannsson við matarborðið heima á Brekkulæk

Halda íslenskri menningu til haga

Eftir menntaskólann ákvað Arinbjörn því að flytja til Freiburg í Þýskalandi og læra þýsku. Hann vann fyrsta árið í byggingavinnu og kveðst hafa þénað vel. „Ég var til dæmis í byggingavinnu sem var algjör þrældómur en gaf vel í aðra hönd. Man að það tók mig einn dag að vinna fyrir mánaðar húsaleigu í steypuvinnu. Var alveg vanur slíkri vinnu héðan úr sveitinni, en í mínum uppvexti var það siður að þegar byggt var tóku sveitungar allir þátt í steypuvinnu og mannfrekari vinnu við byggingar. Ég skráði mig svo í Kölnarháskóla með mannfræði sem aðalfag. Þar var m.a. boðið upp á kúrs sem fjallaði um það sem menn óttuðust að gæti gerst; menningarleg blöndun samhliða ferðaþjónustu sem þá var víða að byrja. Þá voru til dæmis ævintýraferðir til Afríku að ryðja sér til rúms og vísindamenn höfðu miklar áhyggjur af því að vestræn menning og neysluhyggja myndi valta yfir forna menningu sem hafði fram að því ekki komist í kynni við vestrænar hefðir. Þetta hafði talsverð áhrif á mig og ég fór að hugsa um okkar íslensku menningu og hvað væri einstakt við hana,“ rifjar Arinbjörn upp. „Niðurstaðan úr þessum kúrs var þó sú að ef menn væru nógu ánægðir og stoltir af eigin menningu þá væri engin hætta á ferð þótt túrismi ykist. Ég hef alla tíð haft þetta í huga þegar ég er að skipuleggja mínar ferðir. Passa til dæmis vel að hafa íslenskan mat á boðstólnum og að sýna gestum mínum með stolti það sem við sjálf höfum fram að færa sem þjóð og einkennir okkur. Hér fá gestir okkar því að borða það sem ég ólst sem krakki upp við að borða; kjötsúpu, soðna ýsu með smjöri og svo framvegis.“

Vel hýst jörð

Eftir nám og búsetu í Þýskalandi byrjar Arinbjörn að feta sig áfram í ferðaþjónustu heima á Íslandi ásamt fyrrverandi sambýliskonu sinni, Gudrunu Kloes. Reyndar byrjaði hann að bjóða upp á ferðir til Íslands meðan hann var enn búsettur í Þýskalandi. „Ég bjó í Þýskalandi í átta ár en síðustu þrjú árin dvaldi ég ytra yfir vetrartímann en bjó á Íslandi á sumrin og skipulagði fyrstu ferðirnar. Ég auglýsti fyrst í ýmsum hesta- og borgarblöðum en var fljótlega kominn í samband við ferðaskrifstofur ytra,“ segir Arinbjörn sem einnig stofnaði sína eigin ferðaskrifstofu. Enn í dag markaðssetur hann ferðir sínar með svipuðum hætti og hann gerði í upphafi. Prentar myndskreytta bæklinga með ferðum ársins og dreifir í sex þúsund eintökum til valinna viðskiptavina ytra. Auk þess heldur hann úti heimasíðu á netinu en kveðst að öðru leyti vera fremur gamaldags í markaðssetningu og talar mikið við viðskiptavini sína í síma. Frá upphafi lagði hann áherslu á á þýskumælandi gesti í hópferðunum.

Fljótlega fór Arinbjörn að nýta gamla bæinn á Brekkulæk fyrir þjónustuna, en bærinn hafði reyndar skemmst að hluta í bruna áður en hann sjálfur hóf rekstur. Gerði hann því húsið upp og hefur í fjórgang byggt við það. Þar eru nú 18 herbergi fyrir gesti, allt frá litlum herbergjum í elsta hluta hússins í rúmgóð tveggja manna herbergi með baði. Nú er hægt að taka á fjórða tug í gistingu, eldhús og rúmgóður matsalur er í húsinu, móttaka og vinalegt andrúmsloft þar sem Claudia Hofmann ræður ríkjum. Þá hefur Arinbjörn einnig gert upp hlöðu frá 1932, byggt starfsmannahús og árið 2016 byggði hann reisulegt átján hesta hús og sambyggða verkstæðisbyggingu með starfsmannaíbúð yfir hluta hússins. Hús eru öll máluð og vel við haldið þannig að staðarlegt er heim að líta.

Prófaði með vinunum

Arnarvatnsheiði hefur alla tíð gegnt lykilhlutverk í ferðaþjónustu Arinbjarnar hvort heldur farið er yfir heiðina í skipulögðum gönguferðum eða á hrossum. „Þessi náttúruperla er nánast við bæjardyrnar hjá okkur og ég þekki svæðið eins og fingurna á mér. Áður en ég hóf ferðaþjónustu hafði ég fengið vini mína í heimsókn og farið með þá í veiðiferðir upp á heiði. Í gegnum þá fékk ég að upplifa áhrifin sem þetta svæði hafði á þá sem þekktu það ekki fyrir. Ég vissi því að þetta væri eitthvað sérstakt og gæti fallið í kramið,“ rifjar Arinbjörn upp. Þá hafði hann sem ungur maður einnig unnið fyrir sér sem leiðsögumaður fyrir laxveiðimenn í Miðfjarðará á sumrin og í gegnum það starf fengið smjörþefinn af sérhæfðri ferðaþjónustu.

Fræg mynd sem sýnir fjallkóngana Ágúst á Hofi og Jón í Geirshlíð á Svartárhæð 1948. Það urðu fagnaðarfundir þegar bændur hittust á Arnarvatnsheiðinni, oft kært þeirra á millum

Haldið yfir heiðina

Fyrstu árin bauð Arinbjörn upp á hestaferðir um Arnarvatnsheiði þar sem gist var við frumstæðar aðstæður á eyðibýlinu Aðalbóli í Austurárdal. Þannig var það fyrstu árin áður en starfsemin færðist alfarið heim að Brekkulæk. „Ég fór fyrst ríðandi með hópa yfir Tvídægru og Arnarvatnsheiði og í Húsafell sumarið 1984. Þegar þangað kom keypti ég ódýra gistingu hjá Kristleifi bónda, fékk aðstöðu til matseldar og komumst í bað.“ Á þessum árum var Ferðaþjónusta bænda að mótast en Kristleifur var einn af frumkvöðlunum á þeim vettvangi, ásamt til dæmis hjónunum Ingibjörgu og Árna í Fljótstungu og fleirum. „Ég lenti í nefnd sem kallaðist Verðlagsnefnd Ferðaþjónustu bænda og var í henni ásamt Kristleifi og Eiríki nokkrum. Svo þegar ég fer að kaupa þjónustu af Krilla reyndist hann mér alltaf mjög velviljaður. Kristleifur kenndi mér í raun sögu Surtshellis og að rata um rangala hans.“

Tekið eftir stórum hópum

„Allt frá 1984 og til 2008 miðaðist skipulag ferðanna hjá mér við að hafa bækistöð á Húsafelli eftir oft á tíðum erfiða ferð yfir heiðina. Ég leigði litlu smáhýsin sem Krilli byggði á árdögum sinnar þjónustu. Þau voru hins vegar tekin burtu til að rýma til fyrir bílastæði við nýtt hótel og mér var sagt upp. Þá fékk ég inni fyrir hópana mína hjá Ragnari Sigurðssyni ferðaþjónustubónda á Kirkjubóli og hef verið þar síðustu 15 ár.“

Arinbjörn rifjar upp að hann hafi farið nokkrar ferðir á hverju sumri yfir Arnarvatnsheiðina, allt upp í hálfsmánaðar langar ferðir um heiðina, Borgarfjörð, Dali og þaðan aftur yfir í Miðfjörðinn. „Yfirleitt voru 12 manns í hverri ferð og þrjú hross á mann, hátt í fimmtíu hross. Þetta voru því stórir hópar sem heimafólk í Borgarfirði og Dölum tók vel eftir þegar við vorum á ferð. Á fáfarnari leiðum leigði ég gangnamannaskála eða eyðibýli til gistingar, bæði á heiðinni og til dæmis að Svarfhóli í Miðdölum. Á vorin kem ég upp fyrir gönguhópana birgðastöðvum með ýmsum mat sem þolir geymslu. En þetta gat verið býsna mikill þrældómur. Það þurfti að elda á áningarstöðum og passa vel upp á aðbúnað bæði manna og hrossa,“ rifjar Arinbjörn upp. Þá var heldur ekkert símasamband á þessari leið og lengst liðu fimm nætur á milli þess að hann gat látið vita af ferðum sínum og hópsins. „Slíkt væri óhugsandi núna þegar fólk er háð samskiptum við umheiminn og lætur helst ekki líða klukkustund án þess að þurfa að fara í símann til samskipta,“ segir hann.

Á vegum Ferðafélags Íslands er boðið upp á fáfarna gönguleið, sem skipulögð er í samstarfi við Arinbjörn Jóhannsson, um afrétt Borgfirðinga og Vestur-Húnvetninga. Lagt er upp frá vaði á Norðlingafljóti og gengið meðfram Eiríksjökli og upp undir Langjökul. Þaðan er haldið norðvestur yfir Arnarvatnsheiði og niður í Miðfjörð. Ljósm. FÍ

Lærist að lesa í landið

Aðspurður um hvort eitthvað alvarlegt hafi komið upp á í þessum löngu ferðum segir Arinbjörn að hann hafi blessunarlega verið laus við það. Vissulega hafi hann lent í allskonar veðrum enda er sögusviðið Ísland. „Reyndar í ferð númer tvö fyrsta árið mitt 1979 gerði afar mikla þoku á heiðinni, en það fór þó vel, maður áttaði sig og slapp við villu.“ Einn af gestum í einmitt þeirri ferð var Dalamaðurinn Árni Björnsson þjóðháttafræðingur sem skrifaði um reynslu sína úr ferðinni í Helgarpóstinn sem kom út 14. september það ár. Fór Árni lofsamlegum orðum um ferðina og lýsti henni m.a. með þessum hætti: „Ég get mælt með þessum ferðum við þá, sem vilja slappa af án þess að liggja í leti og hafa þó að mestu sína hentisemi fram í heiðanna ró. Þótt aðbúnaður sé frumstæður, er hann kjarngóður og öruggur líkt og í fjárleitum. Menn verða einungis að hafa meðferðis hlýjan og skjólgóðan fatnað, föðurland og annað úr blessaðri íslensku ullinni. Gerviefni ætti að forðast næst sér og bómull í hófi.“ Í lokaorðum gat Árni þess svo að Arinbjörn seldi ferðina á alltof lágu verði!

„Þetta reyndist allt rétt hjá Árna. Svo hefur maður auk þess lært af reynslu áranna sitthvað sem hafa þarf í huga í svona ferðum, svo sem að allir hafi regnfatnað og hlý föt til skiptanna, eins og reyndar Árni hafði bent á. Með tíð og tíma lærist auk þess að lesa í landið, veðrabrigði og slíkt. Á fjöllum ber maður sem leiðsögumaður ábyrgð á hópnum og velferð hans.“

„Að vakna við heimsfriðinn sjálfan“

Aðspurður segist Arinbjörn sjálfur hafa farið yfir 100 hestaferðir yfir Arnarvatnsheiði og auk þess mun fleiri ferðir þar sem riðið var upp í Fljótsdrög og þaðan til baka í Miðfjörðinn. Í þessum ferðum kynntist hann fjölda Borgfirðinga og Dalamanna og kveðst afskaplega þakklátur fyrir þau kynni. Segist jafnvel vel getað hugsað sér að flytja í Borgarfjörðinn ef hann seldi jörð og rekstur á Brekkulæk og þyrfti að flytja búferlum. „Ég hef kynnst mörgu góðu fólki á öllum þessum árum. Ég hafði frá unga aldri verið óskaplega hrifinn af kveðskap Guðmundar Böðvarssonar skálds á Kirkjubóli sem var í raun og veru skáld Arnarvatnsheiðar. Hann var sannkallað átthagaskáld sem sótti yrkisefni sitt til þess umhverfis sem hann þekkti best, svo sem í kvæðinu; „Að vakna við heimsfriðinn sjálfan, um sumar á heiði.“ Skáldið Guðmundur á Kirkjubóli var einstakur maður sem fangaði stemninguna, sem gerir það að verkum að hans verður alltaf minnst. Sigurði syni Guðmundar kynntist ég svo vel meðal annars þegar hann var að vinna við sauðfjárveikivarnargirðingar á heiðinni upp úr 1980 og síðar aftur þegar ég fer að kaupa veitingar á Kirkjubóli, fyrst af Sigga og Erlu, en síðar af Ragnari syni þeirra þegar gisting bættist við 2008.“

Arinbjörn í nýlegu hesthúsi á Brekkulæk. „Af því ég er sjálfur ekki búnaðarskólagenginn, hef ég ekki þótt þess verðugur að taka nemendur frá Hólum í verknám.“

Þverárhlíðin fegurst

Í spjalli blaðamanns við Arinbjörn yfir kvöldmatnum á Brekkulæk; dýrindis þorski í karrísósu, kemur svo í ljós að hann þekkir meira og minna allt fólk í uppsveitum Borgarfjarðar, auk flökkusagna af fólki, einstaka karaktera og mannlífið í héraðinu. Jafnvel betur en blaðamaður sem þó er uppalinn í héraðinu. „Það er margt eftirminnilegt fólk sem ég hef kynnst. Um árabil fengum við til dæmis gistingu í Samkomuhúsinu við Þverárrétt og þar kynntist ég öðlingnum Gunnari Eiríkssyni á Grjóti sem þar var húsvörður. Svo gæti ég nefnt marga fleiri, svo sem Jón á Haukagili og Snorra á Augastöðum, sem dæmi. Þarna um slóðir finnst mér auk þess fallegustu staðir okkar lands. Meðal annars Norðtunguskógur og líklega er Þverárhlíð fegursta sveit landsins,“ segir Arinbjörn.

Rifar seglin

Núorðið segir Arinbjörn að ferðir sem hann býður upp á séu mest megnis gönguferðir sem snúast um útivist og nálægð við náttúruna. Lengri hestaferðir eru ekki í boði en hann býður þó upp á styttri hestaferðir um nágrennið í Miðfirði og er þá gist á Brekkulæk. Um fimmtíu hross hefur hann á járnum og árla alla morgna fer húsbóndinn út og rekur hrossin heim í aðhald með dyggri aðstoð heimilishundanna. „Við getum ekki lengur sinnt matseld og gistiþjónustu eins og vel og við gerðum hér áður. Til að mynda leggjum við ekki í að hafa kokk á launum allt árið, slíkur starfskraftur kostar mikið. Við leggjum því meiri áherslu á hópa sem hingað koma, akstur og skipulagningu. Það hefur ekki gengið nógu vel að fá leiðsögumenn í hestaferðirnar en hins vegar erum við með landsliðið í gönguleiðsögn,“ segir Arinbjörn. Sjálfur kveðst hann vera farinn að lýjast í skrokknum, er með liðabólgu sem erfitt sé að ráða við og sé því ekki lengur eins fótfrár og styrkur og forðum daga þegar hann hljóp á fjöll án þess að blása úr nös. „Við erum farin að skera niður í ferðaþjónustunni, vorum í mörg ár með um tuttugu manns í vinnu en núna mest tíu yfir sumartímann. Við erum með par sem býr hér og vinnur nú fram á haustið. Við bjóðum svo upp á gistingu fyrir hópa á veturna og nokkrar fastar ferðir eru skipulagðar utan háannar, svo sem norðurljósaferðir og ferð um áramótin.“ Arinbjörn er með nokkra litla hópferðabíla í rekstrinum, sækir gesti á flugvöllinn og býður auk hesta- og gönguferða upp á ýmsar skipulagðar ferðir um landið. Hann kveðst ekki hættur, en þau hafa ákveðið að bjóða reksturinn til sölu.

Gamla hlaðan frá 1932 hefur verið gerð upp og þjónar sem lager fyrir allt sem til þarf fyrir langar ferðir á fjöllum. Hér er Arinbjörn við stígvélarekkann

Gorbi vísaði til sætis

Á spjalli við Arinbjörn á Brekkulæk kemur ýmislegt forvitnilegt í ljós. Meðal annars undrast hann að Háskólinn á Hólum hafi ekki viðurkennt sig sem bónda til að taka verknámsnema. Nú hafi hann lengri reynslu en flestir í skipulagningu í ferðaþjónustu og stundar hrossarækt, tvær af þremur aðal kennslugreinum á Hólum. „Báðar þessar greinar eru kenndar við skólann. En af því ég er sjálfur ekki búnaðarskólagenginn, hef ég ekki þótt þess verður að taka nemendur í verknám. Já, það er margt skrýtið í þessari veröld,“ segir hann og bætir við að sér komi því ekki á óvart að skólinn hafi leitað eftir nánu samstarfi og jafnvel samruna við Háskóla Íslands.

En það er fleira rifjað upp. Meðal annars þegar leiðtogafundur Reagan og Gorbatsjevs var haldinn í Reykjavík 1986. Þá hafi hann verið ráðinn sem túlkur fyrir þýsku sjónvarpsstöðina ZDF sem sendi stóra sendisveit hingað til lands. „Ég var eiginlega vikapiltur hjá þýska sjónvarpinu. Það var forvitnilegur tími. Gaman er að rifja það upp að þegar Gorbatsjev hélt blaðamannafund að loknum leiðtogafundinum í Laugardalshöllinni var ég þarna ásamt sjónvarpsgenginu. Við vorum stödd uppi á sviði og fyrir einhvern misskilning hélt Gorbatsjev að ég væri hátt settur erlendur erindreki og vísaði mér til sætis ásamt öðrum heiðursgestum,“ segir hann og hlær. „En það stafaði mikil útgeislun af Gorbatsjev, var mjög svo viðkunnalegur maður.“

Það njóta ekki allir eldana sem fyrstir kveikja þá

Það er ljóst að ævistarf Arinbjörns Jóhannssonar er ferðaþjónusta og leiðsögn um landið. Dóttir þeirra Arinbjarnar og Claudiu er átján ára og stundar listnám við Verkmenntaskólann á Akureyri. Tvo uppkomna syni á Arinbjörn úr fyrri sambúð. Aðspurður býst hann ekki við að börnin taki við búinu á Brekkulæk. „Við erum með jörðina og reksturinn á söluskrá hjá Magnúsi Leópoldssyni fasteignasala og erum tilbúin að hætta ef við fáum viðunandi kauptilboð. Þessi aðstaða sem við höfum byggt upp býður upp á fjölmarga möguleika hvort sem það er til svipaðs rekstrar og við höfum verið með, eða að breyta honum. Það væri til dæmis hægt að auka við gistingu, hægt að byggja hér upp hestamiðstöð eða hvaðeina sem mönnum dettur í hug,“ segir hann.

Ýmsir innviðir, sem í dag þykja nauðsynlegir til reksturs ferðaþjónustu, hafa á liðnum vikum og misserum verið að batna á Brekkulæk. Samhliða því að hitaveita var lögð frá Laugarbakka í sumar var ljósleiðarastrengur lagður að bænum. Þá er þriggja fasa rafmagn að detta í hús, sem gerir gæfumuninn þegar kemur að kaupum og rekstri á öllum stærri rafmagnstækjum. „Hér er því allt til alls, sveitin grösug og búsæld mikil. Við höfum talsverðar tekjur af hlunnindum árinnar og höfum haldið bæði mannvirkjum, girðingum og ræktun við. Nú er maður hins vegar farinn að reskjast og nú þegar 45 ára starfsafmælið nálgast höfum við ákveðið að opna fyrir þann möguleika að nýir kaupendur geti tekið við rekstrinum,“ segir Arinbjörn að endingu.

Við kveðjum þau Claudiu og Arinbjörn sem nýtt hafa Arnarvatnsheiði og náttúruna þar á vistvænan hátt í ferðaþjónustu sinni. Á heimleiðinni er fetað í spor Eiríks forðum og bændanna á Brekkulæk, ekið sem leið liggur upp úr Miðfirðinum, inn Austurárdal, yfir brúna og upp á heiðina. Komið er að Arnarvatni stóra, þar sem margir veiðimenn freista þess að veiða silung, og svo er áfram ekið suður heiði sem leið liggur að Húsafelli. Vegurinn er prýðilega jepplingafær, á löngum köflum vel við haldið og ekki þarf lengur að „sundkeyra“ yfir vaðið á Norðlingafljóti þar sem nýlega var reist brú. Reyndar finnst Arinbirni brúin með öllu óþörf, því hafi fylgt ákveðin spenna hjá gestum hans að vaða yfir fljótið við upphaf eða endi ferðar yfir Arnarvatnsheiði.