
Útvarp Akranes fer í loftið í lok nóvember
Allt frá árinu 1988 hefur Sundfélag Akraness staðið fyrir útvarpsdagskrá fyrstu helgina í aðventu undir nafninu Útvarp Akranes. „Engin undantekning er á slíku í ár en útvarpað verður dagana 27.-29. nóvember. Að venju verður dagskráin fjölbreytt en undirbúningur er í fullum gangi þessa dagana. Með Útvarpi Akraness hefst undirbúningur jólanna af fullum krafti hjá mörgum Skagamönnum,“ segir í tilkynningu.
Á þeim árum sem Útvarp Akraness hefur verið starfrækt hefur fjöldi Akurnesinga og gesta komið við sögu, ýmist sem þáttagerðarfólk eða viðmælendur. „Enginn vafi er á því að stór hluti af því efni sem flutt hefur verið í Útvarpinu er merkileg heimild um bæjarlífið á Akranesi auk þess sem þar er að finna margs konar sögulegan fróðleik. Fjöldi gamalla þátta útvarpsins er kominn inn á spotify-rás Útvarps Akraness og því mögulegt að rifja upp eldra efni sér til ánægju og yndisauka.
Ef áhugasamur og hugmyndaríkur þáttastjórnandi býr í þér hafðu þá samband á netfangið utvarpakraness@gmail.com“