Þjóðvegur við Akranes lokaður

Vegna framkvæmda við hringtorg og hjáleið á vegamótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar verður Akrafjallsvegur lokaður frá hádegi í dag, mánudag, til hádegis fimmtudaginn 5. nóvember.

Lokun verður við:

•          Vestri-Reyni austan við Akranes, við vegamót Innnesvegar og Arkafjallsvegar. Hjáleið um Innnesveg.

•          Flóahverfi, aðkoma að Flóahverfi úr norðri, um Hringveg og Akrafjallsveg.

•          Akranesveg við Hesthúsatorg, hjáleið um Innnesveg