Örvar Sveinsson

Örvar ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi

Örvar Sveinsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Elkem á Íslandi og tekur til starfa 12. nóvember næstkomandi. Örvar starfaði áður hjá Elkem í átta ár og snýr nú aftur til fyrirtækisins eftir að hafa undanfarin ár stýrt framleiðslustarfsemi hjá Össuri. Örvar tekur við starfinu af Birki Guðmundarsyni, sem hefur gegnt hlutverki forstjóra tímabundið síðustu mánuði eftir að Álfheiður Ágústsdóttir fráfarandi forsjóri réði sig til annarra starfa.