Guðbrandur Gunnar Garðarsson matreiðslumaður og Bryndís Guðmundsdóttir. Ljósm. Grundarfjörður.

Nýtt skólaeldhús tekið í notkun í Grundarfirði

Nýtt eldhús hefur verið tekið í notkun í Grunnskóla Grundarfjarðar að loknum framkvæmdum sem staðið hafa yfir undanfarin misseri. Þar verður framvegis eldaður matur fyrir nemendur bæði grunn- og leikskólans, en hingað til hefur matargerðin farið fram í eldhúsi leikskólans.