
Drógu stjórnvana skip til hafnar
Laust fyrir hádegi í gær fékk sjóbjörgunarflokkur Björgunarfélags Akraness það verkefni að sækja skipið Hafdísi SK-4, sem fengið hafði í skrúfuna og var því stjórnvana. Skipið var þá statt á Faxaflóa, um tuttugu sjómílur vestur af Akranesi. Farið var í verkefnið á björgunarskipinu Kristrúnu á Bjargi. Eftir að búið var að koma taug á milli skipanna gekk heimferðin fremur seint þar sem veiðarfærin orsökuðu það að báturinn var eiginlega dreginn á hlið til hafnar. „Þetta var dáldið tafsamt og erfitt af þeim sökum, en blessaðist allt saman,“ sagði Ásgeir Örn Kristinsson sem var einn fjögurra í áhöfn Kristrúnar á Bjargi í ferðinni. Þegar komið var með skipið að höfn á Akranesi kom Þjótur, lóðsbátur Faxaflóahafna, til aðstoðar við að stýra skipinu að bryggju. Þar var strax hafist handa við að losa nótina úr skrúfunni. Gekk það vel og sigldi áhöfnin til veiða að nýju undir kvöld.
Dragnótarbáturinn Hafdís SK er 122 brúttótonn. Fisk Seafood ehf. gerir skipið út frá Sauðárkróki. Snæfellingar þekkja þetta skip vel, en það hét síðast Gunnar Bjarnason SH 122 og var gerður út frá Ólafsvík.
Hafdís SK er stærsta skip sem Kristrún á Bjargi hefur komið til aðstoðar frá því skipið kom frá Ísafirði. Þetta var sjötta útkallið á Kristrúnu frá því í maí.

