
Biðröð var út á götu eftir að fá að fara inn. Myndir neðar í fréttinni eru ekki fyrir viðkvæma. Ljósm. Kolla Ingvars
Draugahúsið fékk hlutverk á hrekkjavöku – Varúð! hryllileg myndasyrpa
Gamalt hús við Vesturgötu 74 á Akranesi má muna sinn fífil fegurri. Húsið var kallað Bjarg og hefur staðið autt í þrjá áratugi. Fyrir nokkrum árum var húsið m.a. notað sem sviðsmynd í stuttmynd sem þar var tekin upp. Eigendur hússins eru hjónin Ólafur Lárus Gylfason og Ólöf Vigdís Guðnadóttir. Þau hafa sótt um leyfi til niðurrifs á húsinu og ætla að byggja nýtt hús sem verður framar á lóðinni.