Framúrskarandi fyrirtæki á Vesturlandi

Líkt og undanfarin ár útnefndi Creditinfo fyrirmyndarfyrirtæki landsins. Alls eru þau 1.195 á landsvísu og þar af 56 hér á Vesturlandi. Það eru tveimur fleiri en á síðasta ári. Nokkur bætast á þennan eftirsótta lista eins og gengur en önnur hafa fallið af honum af ýmsum ástæðum. Viðurkenningar voru veittar síðastliðinn miðvikudag.