
Oddfellow veitti myndarlega styrki á Vesturland
Í dag úthlutuðu Oddfellow stúkurnar á Akranesi styrkjum til átta verkefna á Vesturlandi. Það er Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa sem hefur undanfarið úthlutað styrkjum til regluheimilinna á landinu. Að þessu var úthlutað við athöfn á Akranesi 20 milljónum króna til eftirtalinna félaga og verkefna:
Akraneskaupstaður vegna kaupa á lyftu í Bjarnalaug.
Heilbrigðisstofnun Vesturlands til kaupa á tveimur æðaskönnum í sjúkrabifreiðar.
Hjúkrunarheimilið Brákarhlíð í Borgarnesi, í samstarfi við Rótarýklúbbs Borgarness. Styrkur vegna kaupa á tannlæknastól.
Rekstrarstyrki fengu Björgunarfélag Akraness og björgunarsveitirnar Brák í Borgarnesi, Heiðar og Ok í Borgarfirði.
Heilahjálp, félag Alzheimersjúklinga og aðstandenda, fékk styrk til félagsstarfs á Akranesi.

Oddfellow eru alþjóðleg samtök sem eiga rætur sínar að rekja til Englands á 18. öld. Hér á landi á reglan rætur sínar í Bandaríkjunum en kemur héðan frá Danmörku þegar danskir Oddfellowar komu til Íslands og stóðu meðal annars að byggingu Holdsveikispítalans í Laugarnesi í kringum 1890. Upp frá því var fyrsta stúkan stofnuð á Íslandi og hefur reglan því verið starfandi í kringum 130 ár.
Við athöfn í tilefni styrkveitinganna á Kirkjubraut 56 á Akranesi í dag var sagt frá starfi Oddfellow stúkanna á Akranesi og starfsemi Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa á landsvísu. Í máli Ingþórs Bergmanns Þórhallssonar við þetta tækifæri kom fram að reglan leggur áherslu á persónulegan þroska og hjálparstarf í samfélaginu undir tákni reglunnar, sem eru þrír samtengdir hlekkir sem standa fyrir einkunnarorðin: „Vinátta, Kærleikur og Sannleikur.“ Æðra markmið hennar er að vitja sjúkra, líkna bágstöddum og jarða framliðna.
Á Akranesi eru þrjár stúkur starfandi; Stúka nr. 8 Egill, Rebekkustúkan nr. 5 Ásgerður og Rebekkustúkan nr. 19 Þórdís. Í þessum þremur stúkum eru 240 syskini. Heildarfjöldi Oddfellowa á landsvísu er ríflega fjögur þúsund manns í 49 stúkum; 28 bræðrastúkum og 21 Rebekkustúku.
