Þóra Sonja Helgadóttir, fulltrúi Mannauðsseturs og sjóðs Heklu, afhendir Birki Jóni Jónssyni, bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar viðurkenninguna að viðstöddum hluta starfsfólks Grundarfjarðarbæjar. Ljósm. Grundarfjörður.

Grundarfjarðarbær í þriðja sæti í vali á Sveitarfélagi ársins

Grundarfjarðarbær hafnaði í þriðja sæti í könnuninni Sveitarfélag ársins 2026, þar sem lagt er mat á starfsumhverfi, líðan og starfsánægju starfsmanna sveitarfélaga. Bærinn var meðal fjögurra sveitarfélaga sem hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur í starfsmannamálum.