Hús kynslóðanna við Borgarbraut 63 í Borgarnesi. Ljósm. mm

Verklok við Hús kynslóðanna í Borgarnesi

Í gærkvöldi var boðað til veislu í bílakjallara Húss kynslóðanna við Borgarbraut 63 í Borgarnesi og því fagnað að byggingu hússins og frágangi við það er nú lokið. Á neðstu hæð hússins eru nemendagarðar frá Menntaskóla Borgarfjarðar sem nemendur skólans, sem eiga um lengri veg að fara frá heimili sínu, fluttu í fyrir upphaf haustannar í skólanum. Á efri þremur hæðum hússins eru tólf fullbúnar íbúðir í tveimur stærðum sem ætlaðir eru fyrir 55 ára og eldri. Nes fasteignasala annast nú sölu þeirra. Nafn hússins er dregið af þessu sambýli yngra og eldra fólks og mun þetta vera í fyrsta skipti hér á landi sem lagt er upp í slíkt samvinnuverkefni. Húsið er einkar vel í sveit sett í Borgarnesi með tilliti til nálægðar við ýmsa verslun og þjónustu. Þá er útsýni dágott af öllum hæðum þess. Íbúðir í húsinu eru komnar í sölu og flutt er inn í eina þeirra.