
Sprengingar hefjast eftir helgi við Birkiklett og Húsasmiðjuna
Borvinna stendur nú yfir við Birkiklett og Húsasmiðjuna í Borgarnesi vegna fyrirhugaðra gatnaframkvæmda á svæðinu. Stefnt er að því að hefja sprengingar mánudaginn 2. nóvember og er gert ráð fyrir að þær standi yfir í um tvær vikur. Borgarverk annast jarðvinnuna.