
Sjónum beint að ungu fólki í umferðinni á alþjóðlegum minningardegi
Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 15. nóvember. Minningarathafnir verða víða um land og að þessu sinni verður sjónum beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna. Slysavarnafélagið Landsbjörg, í samvinnu við viðbragðsaðila á hverjum stað, standa að minningarathöfnum víða um land. Í ár munu unglingadeildir björgunarsveitanna gegna lykilhlutverki við athafnirnar.
Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðarslysum og leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Þá er rík hefð fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum sem sinna björgun og aðhlynningu þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf þeirra.
Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessu efni. Frá því að fyrsta banaslysið var skráð á Íslandi 25. ágúst 1915, hafa samtals 1.642 einstaklingar látist í umferðinni (m.v. 15. október 2026). Enn fleiri hafa slasast alvarlega, tekist á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum.