
Setja reglur um auglýsingar í íþróttamiðstöðinni í Búðardal
Byggðarráð Dalabyggðar hefur samþykkt reglur um birtingu auglýsinga í íþróttamiðstöðinni í Búðardal. Þar eru tveir upplýsingaskjáir sem einstaklingar, félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki geta nýtt til að kynna viðburði og miðla upplýsingum sem eiga erindi við almenning. Birting slíkra auglýsinga er gjaldfrjáls, að uppfylltum skilyrðum reglnanna.