Heitavatnslaust í Búðardal á morgun – sundlaugin lokuð

Heitavatnslaust verður í Búðardal og á heimilum norðan Haukadalsár í Dölum á morgun, laugardaginn 31. október, vegna breytinga á stofnlögn hitaveitunnar. Gert er ráð fyrir að vatnsleysið standi frá klukkan 9 til 17, en áætlað er að byrjað verði að hleypa vatni á kerfið um klukkan 15 og að fullum afköstum verði náð fyrir klukkan 18.

Vegna framkvæmdanna verður sundlaugin í Búðardal lokuð þennan dag, en líkamsræktin verður opin samkvæmt hefðbundnum opnunartíma. Nánari upplýsingar fást hjá stjórnstöð Rarik í síma 528 9000 og kort af svæðinu þar sem heitavatnsleysið verður má finna á vef fyrirtækisins.