Gatnamótum Akranesvegar og Akrafjallsvegar lokað í nokkra daga

Gatnamótum Akranesvegar og Akrafjallsvegar, skammt frá hitaveitutönkunum við Akranes, verður lokað frá hádegi mánudaginn 2. nóvember og fram á síðdegi fimmtudagsins 5. nóvember vegna framkvæmda við nýtt hringtorg á svæðinu.

Lokunin er nauðsynleg vegna vinnu við gerð hjáleiðar fram hjá framkvæmdasvæðinu. Á meðan verður umferð beint um Innnesveg, milli gatnamóta við Rein og Akranes. Áætlað er að leggja klæðningu á hjáleiðina meðan á lokuninni stendur, en framgangur verksins er háður veðri, einkum úrkomu.