Litið inn eftir Vesturlandsganginum á Mannamóti 2025. Ljósm. mm

Skráning hafin á Mannamót ferðaþjónustunnar

Skráning er hafin á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna sem haldin verða í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 28. janúar 2027. Ferðaþjónustufyrirtæki á Vesturlandi eru hvött til þátttöku en Mannamót eru stærsti kynningar- og tengslamyndunarvettvangur landsbyggðarferðaþjónustunnar. Viðburðurinn er hluti af Ferðaþjónustuvikunni sem fram fer á höfuðborgarsvæðinu dagana 26.–28. janúar. Þar koma saman ferðaþjónustuaðilar víðs vegar af landinu til að efla samstarf, kynna starfsemi sína og mynda ný viðskiptatengsl.