Ingibjörg SH siglt til hafnar í Ólafsvík. Ljósm. af

Nýr bátur til útgerðar Breiðavíkur í Ólafsvík

Ingibjörg SH 112 kom á laugardaginn til Ólafsvíkur. Bátnum var siglt frá Ballstad í Noregi þar sem hann var keyptur. Í Njarðvík var unnið við breytingar á lest og slæingarvélar teknar frá borði auk smærri verkefna. Eftir það var bátnum siglt til Hafnarfjarðar þar sem sett var upp blóðgunar- og slægingaraðstöðu og lestinni breytt í karalest, en áður voru þrjá tankalestar um borð. Þorsteinn Bárðarsson útgerðamaður Breiðavíkur, sem keypti bátinn, segir að á næstu dögum verður farið í að prófa bátinn á veiðum með dragnót. Fyrir á Breiðavík tvo aðra báta; línubátinn Kristinn HU og netabátinn Júlla Páls SH.