„Stærri embætti tryggja ekki sjálfkrafa betri stjórnun, aukna hagkvæmni eða betri þjónustu. Þvert á móti geta boðleiðir lengst, ákvarðanataka orðið hægari og fjarlægð milli stjórnenda, lögreglumanna og íbúa aukist,“ segir í umsögn Lögreglufélags Vesturlands. Ljósm. úr safni/tfk

Lögreglumenn andsnúnir tillögum um fækkun embætta

Lögreglumenn á landsbyggðinni eru langt frá því sammála þeim breytingum sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra leggur til um fækkun lögregluembætta á landinu úr níu í þrjú. Í samráðsgátt stjórnvalda skiluðu félög lögreglumanna, sveitarfélög og fleiri inn umsögnum, en umsagnarfresti lauk í gær og höfðu þá 29 sent inn umagnir. Í umsögn Lögreglufélags Vesturlands kemur fram að mikill meirihluti lögreglumanna á Vesturlandi er mótfallinn frumvarpsdrögunum í heild sinni og fyrirhugaðri fækkun lögregluembætta. „Við teljum að ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn þessara umfangsmiklu breytinga og að hvorki samráð né greiningar liggi fyrir sem réttlæti þessa breytingu.“