Á myndinni eru frá vinstri: Margit Düüna, Janne Pärlin, Guðrún Vala Elísdóttir og Jovana Pavlovic. Ljósm. Símenntun á Vesturlandi.

Eistar kynntu sér starf Símenntunar á Vesturlandi

Tveir fulltrúar eistneska fræðslusambandsins (Eesti Vabaharidusliit), þær Margit Düüna og Janne Pärlin, heimsóttu Símenntun á Vesturlandi í vikunni til að kynna sér starfsemi stofnunarinnar. Þær heimsóttu starfsstöðvar Símenntunar í Borgarnesi og á Akranesi og kynntu sér fyrirkomulag fullorðinsfræðslu og símenntunar á svæðinu.