Sækja um að halda unglingalandsmót

Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) hyggst sækja um að halda Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarbyggð sumarið 2027. Málið var kynnt í byggðarráði í gær þar sem tekið var jákvætt í erindi sambandsins. „Byggðaráð Borgarbyggðar fagnar því og styður umsókn UMSB um að halda Landsmót UMFÍ 2027,“ segir í bókun ráðsins.