
Krefjast upplýsinga úr PISA könnun
Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri, hefur fyrir hönd Borgarbyggðar, kært til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál synjun mennta- og barnamálaráðuneytisins um að veita sveitarfélaginu aðgang að gögnum og upplýsingum úr PISA-könnuninni 2025 varðandi grunnskóla Borgarbyggðar. Í kærunni er þess aðallega krafist að felld verði úr gildi ákvörðun ráðuneytisins og að Borgarbyggð verði afhent afrit af fyrirliggjandi niðurstöðum, sundurliðunum og tölfræðilegum úrvinnslugögnum úr PISA-könnuninni 2025 að því marki sem þau varða grunnskóla í Borgarbyggð. Til vara er þess krafist að kærðu stjórnvöldum verði gert að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum með þeim hætti að afmáðar verði upplýsingar sem kunna að teljast persónugreinanlegar eða háðar lögmætum trúnaði.