
Norska húsið í Stykkishólmi. Ljósm. vaks
Hanna frá Jaðri opnar sýningu í Norska húsinu
Listakonan og hönnuðurinn Hanna frá Jaðri opnar sýningu í Norska húsinu – Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla í Stykkishólmi á morgun, laugardaginn 17. október klukkan 14. Í verkum sínum leikur hún sér með tungumálið, merkingu orða og óvænt tengsl texta, myndlistar og handverks.