
Fuglainflúensa greinist í villtum fuglum
Matvælastofnun hafa undanfarnar vikur borist fjölmargar ábendingar um veika og dauða villta fugla víða um land. Við rannsókn á sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Norðurlandi, Suðvesturlandi og Suðausturlandi frá miðjum september fram í október greindist skæð fuglainflúensa af gerðinni H5N5. Um er að ræða fyrstu greiningar skæðrar fuglainflúensu hér á landi síðan í vor. Síðast greindist fuglainflúensa í heiðagæs við Höfn í Hornafirði í apríl 2026.
Fyrstu jákvæðu fuglainflúensusýnin í haust voru úr fuglum sem fundust á Blönduósi, Skagaströnd og við Sauðárkrók um miðjan september. Um var að ræða hettumáf, skúm, tvo svartbaka og sílamáf. Í kjölfarið bárust fleiri ábendingar um veika og dauða fugla. Fjórir fuglar á Húsavík reyndust smitaðir og auk þess greindist smit í fuglum sem fundust við Jökulsárlón á Suðausturlandi. Nýjustu niðurstöður sýna jafnframt að átta máfar sem fundust dauðir í Sandgerði á Reykjanesi reyndust einnig smitaðir af skæðri fuglainflúensu af gerðinni H5N5.
„Tilkynningum um veika og dauða fugla hefur fjölgað að undanförnu og bendir það til þess að veiran sé farin að dreifast meðal villtra fugla hér á landi á ný. Matvælastofnun fylgist náið með þróuninni með viðeigandi sýnatökum. Fleiri sýni eru nú til rannsóknar og niðurstaðna þeirra er að vænta innan skamms,“ segir í tilkynningu. Á þessu stigi er lítið vitað um umfang útbreiðslunnar, en greiningarnar sýna að veiran er til staðar á Norðurlandi, Suðvesturlandi og Suðausturlandi. Almenningur er hvattur til að tilkynna veika og dauða villta fugla.