
Vökudagar vaxa og dafna – hátt í 70 viðburðir á dagskrá
Vökudagar, menningar- og listahátíð Akraness, verður dagana 22. október til 1. nóvember. Hátíðin hefur vaxið hröðum skrefum undanfarin ár og nú stefnir í tugi viðburða þar sem myndlist, tónlist, sviðslistir og ýmiss konar nýjungar skipa stóran sess. Vera Líndal, verkefnisstjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað, segir hátíðina löngu orðna að einni stærstu samfélagshátíð bæjarins. „Vökudagar hafa stækkað gríðarlega síðustu þrjú til fjögur árin og við erum nú að horfa á í kringum 70 viðburði. Það er ótrúlega gaman að sjá hversu margir vilja taka þátt,“ segir Vera í samtali við Skessuhorn. Dagskráin verður að vanda fjölbreytt og auk hefðbundinna menningar- og listviðburða verður ýmislegt nýtt á boðstólnum. Þar má nefna stafræna sögugöngu, kynningu á þátttöku í norrænni keppni í málaraiðn og sirkussmiðju fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Þá verða fjölmargar myndlistarsýningar, listaganga, bókmenntakvöldið og tónlistarhátíðirnar Heima-Skagi og Lilló Hardcore Festival meðal þess sem setur svip sinn á Vökudaga.