Viðurkenningar Jafnvægisvogarinnar afhentar. Ljósm. FKA/ Silla Páls.

Jafnvægisvogin veitir 163 viðurkenningar

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, sem hvetur fyrirtæki og stofnanir til að setja jafnrétti á dagskrá og vinna markvisst að því að hlutfall hvors kyns verði að minnsta kosti 40% í framkvæmdastjórnum. Félagið hvetur skráð félög, lífeyrissjóði, sveitarfélög og hlutafélög í opinberri eigu til að skrá sig í Jafnvægisvogina, setja sér skýr markmið um kynjajafnvægi og vera öðrum fyrirmynd í jafnréttismálum.