Moli er skráður. Ljósm. ÓHK

Minna á skráningu og ormahreinsun hunda og katta

Dalabyggð minnir hunda- og kattaeigendur á að skrá dýr sín hjá sveitarfélaginu og færa þau árlega til ormahreinsunar hjá dýralækni. Jafnframt bera eigendur ábyrgð á að dýrin valdi ekki ónæði, óþrifnaði eða óhollustu. Allir hundar og kettir í þéttbýli eru skráningarskyldir og greiða eigendur þeirra árlegt gjald samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins. Ormahreinsun er innifalin í skráningargjaldinu. Geti eigandi ekki mætt með dýr sitt á auglýstum tíma þarf að skila staðfestingu frá dýralækni um að ormahreinsun hafi farið fram. Hundar sem notaðir eru við búrekstur á lögbýlum eru undanþegnir skráningar- og árgjaldi. Sama gildir um ketti í dreifbýli. Í báðum tilvikum þarf þó að skila sveitarfélaginu númeri örmerkingar og árlegu vottorði um ormahreinsun.