
Svipmynd úr íþróttastarfi Fimleikafélags ÍA. Ljósm. Fimleikafélag ÍA.
Fimleikar leggja sterkan grunn að allri hreyfingu
Fimleikafélag ÍA á Akranesi hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að breikka starfsemi sína og gera fimleika aðgengilega fyrir enn stærri hóp iðkenda. Aðstaða til fimleika er framúrskarandi á Akranesi eftir að tekið var í notkun sérstakt íþróttahús fyrir starfsemina, við hlið gamla íþróttahússins við Vesturgötu. Skipulag og fimleikastigi félagsins byggja á þeirri hugsun að allir iðkendur fái sterkan hreyfigrunn, óháð því hvaða leið þeir velja síðar. Fimleikar eru fjölþætt íþrótt þar sem styrkur, liðleiki, jafnvægi, samhæfing og líkamsvitund fara saman. Þessi grunnfærni nýtist ekki aðeins þeim sem halda áfram í fimleikum heldur getur hún einnig orðið dýrmætt vegarnesti inn í nánast hvaða íþróttagrein sem er.