
Fólk á Snæfellsnesi beðið að fara sparlega með rafmagn á mánudaginn
Mánudaginn 28. september mun Landsnet fara í viðhaldsvinnu á Vegamótalínu á Snæfellsnesi frá kl. 11:00-18:00. Þetta á við um íbúa í Stykkishólmi, nærri Vegamótum, Grundarfirði, Ólafsvík, Rifi og sveitunum þar í kring. Ekki er búist við rafmagnsleysi vegna þessarar framkvæmdar heldur verður keyrt á varaaflsvélum frá Rarik og Landsneti og virkjunum á svæðinu til að koma rafmagni til viðskiptavina. „Rarik vill þó fara þess á leit við íbúa og fyrirtæki á svæðinu að fara sparlega með rafmagn meðan á þessari aðgerð stendur þar sem miklar sveiflur í notkun raforku geta gert slíka keyrslu erfiðari og valdið truflunum,“ segir í tilkynningu frá Rarik.
Nokkur ráð um hvernig hægt er að fara sparlega með rafmagn á þessum tíma:
- Bíðum með að setja rafbíla í hleðslu
- Slökkvum á rafmagns heitum pottum
- Sleppum notkun þvottavéla og þurrkara
- Hægeldum mat eða eldum hann í smærri tækjum (ekki örbylgjuofninum samt)
- Lækkum hitastig í rafkyntu húsnæði um 1-2°C
- Slökkvum á rafmagnstækjum og ljósum sem ekki er nauðsynlegt að hafa í gangi.