
Svipmynd frá ungmennaráðstefnunni á síðasta ári. Ljósm. UMFÍ
Ungmennaráðstefnu UMFÍ verður um helgina
„Þetta verður algjör veisla. Ég hlakka ótrúlega mikið til af því að það er pakkað á ráðstefnuna og við erum að fá þátttakendur af öllu landinu, marga sem eru að koma í fyrsta sinn,“ segir Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson, varaformaður Ungmennaráðs UMFÍ. Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa fer fram í skólabúðunum á Reykjum í Hrútafirði og er uppselt á hana. Þátttakendur eru ríflega 80 talsins á aldrinum 15–25 ára auk fólks sem fylgir yngri þátttakendum. Ráðstefnan hefst síðdegis á föstudag og líkur eftir hádegi á sunnudag.