Telja starfsmenn hlunnfara í Hark hagkerfinu

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu og aðgerðir sendla heimsendingarfyrirtækisins Wolt. Störf þeirra tilheyra skipulögðum íslenskum vinnumarkaði og hvetur miðstjórn sendla fyrirtækisins til að leita til ASÍ og aðildarfélaga þess til að tryggja þeim stöðu og kjör samkvæmt reglum laga og kjarasamninga. „ASÍ skorar á fyrirtæki hérlendis sem starfrækja stafræna vinnuvettvanga að skrá starfsmenn sína réttilega sem launafólk, gerast aðilar að og fylgja gildandi kjarasamningum um kjör þeirra og réttindi. Íslensk verkalýðshreyfing mun aldrei samþykkja félagsleg undirboð sem grafa undan kjarasamningsbundnum kjörum og réttindum launafólks og leikreglum skipulagðs vinnumarkaðar.“