
Sýna tvær Soffíur við húsið sem þær urðu til
Sunnudaginn 20. september klukkan 15-17 munu bílarnir Soffía II og Soffía III verða til sýnis við gamla verkstæðishúsið í Reykholti (nú slökkvistöð), þar sem þeir voru smíðaðir og áttu lengi vel heima. Bílarnir voru um árabil skólabílar á Kleppjárnsreykjum en á sumrin notaðir í fjallferðum á vegum Úlfars Jakobsen. Nýlega var lokið endurbyggingu Soffíu III og hefur hún nú fengið fulla skoðun. „Allir áhugasamir eru velkomnir að kíkja við. Sögð verður saga saga bílanna og uppgerðar þeirra,“ segir í tilkynningu.