Senda áskorun til sveitarfélaga um verðstöðugleika

Starfsgreinasamband Íslands sendi í gær áskorun til allra sveitarfélaga landsins um þátttöku í þjóðarsátt um verðstöðugleika. „Forsendur gildandi kjarasamninga eru brostnar og nú standa yfir viðræður um viðbrögð við forsendubrestinum. SGS telur brýnt að brugðist verði við með sameiginlegu átaki allra lykilaðila samfélagsins, þjóðarsátt um verðstöðugleika. Markmiðið er skýrt: Að ná niður verðbólgu og vöxtum og skapa þannig skilyrði fyrir því að kjarasamningar haldi,“ segir í tilkynningu frá sambandinu.