Szymon Suchecki (t.v.) er fjórtán ára og Cezary Kobiela (t.h.) er fimmtán ára gamall.

Leita tveggja unglingspilta úr Borgarnesi – uppfærð frétt

Lögreglan á Vesturlandi leitar nú að tveimur piltum á unglingsaldri sem fóru frá heimilum sínum í Borgarnesi fyrir fjórum dögum, sunnudaginn 13. september síðastliðinn. Piltarnir sem um ræðir eru Cezary Kobiela sem er 15 ára og Szymon Suchecki 14 ára. Cezary er 178 sm á hæð, grannvaxinn, með stutt skollitað hár. Hann er klæddur í svarta peysu og svartar buxur. Szymon er 165 sm á hæð, grannvaxinn, með stutt dökkt hár. Hann er klæddur í svarta peysu og svartar gallabuxur og í svörtum skóm. Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir piltanna eftir þann tíma eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.

Uppfært kl. 11:05

Drengirnir hafa að sögn lögreglu látið vita af sér, en er þó enn leitað.