Fossvélar og Suðurverk buðu lægst í breikkun vegar á Kjalarnesi

Síðastliðinn þriðjudag voru opnuð tilboð í breikkun á 5,6 km kafla Hringvegarins frá Valla að Hvalfjarðargöngum á Kjalarnesi. Á kaflanum verða m.a. tvö hringtorg, tvö ný undirgöng, annars vegar við Grundarhverfi og hins vegar við Arnarhamar sem og framlenging núverandi undirganga við Klébergsskóla, auk hliðarvega og stíga. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna, Ljósleiðarans og Mílu.