Fjórtán hundruð óku of hratt

Hundrað ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni sem leið af Lögreglunni á Vesturlandi. Að auki voru 1.294 ökumenn sem voru myndaðir við að aka of hratt, af myndavélabifreið embættisins. Tveir voru stöðvaðir og handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og þrír að auki grunaðir um ölvun við akstur. Fimm ökumenn voru kærðir fyrir að nota farsíma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað og aðrir fimm stöðvaðir þar sem þeir voru að aka ökutækjum án réttinda. Tveir voru kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur.