
Jón Hermannsson með 15 punda lax úr Andakílsá.
Fengu sex laxa í grenjandi rigningu
„Við vorum í Andakílsá og veiddum sex laxa. Það var varla stætt úti fyrir roki og grenjandi rigningu fyrir hádegi,“ sagði Jón Hermannsson sem var að hætta veiðum þegar við heyrðum í honum í gær. Andakílsá hefur gefið 135 laxa í sumar.