
Dýralæknir í Hundahorninu í Rifi
Föstudaginn 2. október nk. verður Steinunn Geirsdóttir, dýralæknir og skurðlæknir, í Hundahorninu Norðurgarði 14 í Rifi á Snæfellsnesi. Hægt verður að bóka tíma í almennar skoðanir og helstu aðgerðir á hundum og köttum, þar á meðal ófrjósemisaðgerðir og geldingar, ásamt annarri almennri dýralæknaþjónustu fyrir hunda og ketti. Með Steinunni verður Birgitta Rún Baldursdóttir, dýrahjúkrunarfræðingur, en saman leggja þær áherslu á faglega og vandaða þjónustu þar sem velferð dýranna er ávallt í fyrirrúmi. „Við stefnum að því að bjóða upp á reglulega dýralæknadaga í Hundahorninu, með tíðni eftir eftirspurn, en takmarkaður fjöldi tíma verður í boði. Bókanir og nánari upplýsingar: hundahornid@hundahornid.is sími 858-7595 og heimasíðan hundahornid.is